Gjöf til hjálparsamtaka í Eyjafirði

Nýlega afhenti Eining-Iðja Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 900.000.

Styrkurinn er notaður í samstarfsverkefni þessara fjögurra samtaka, en fyrir nokkrum árum ákváðu þessi samtök að taka höndum saman fyrir jólin og veita þeim aðstoð sem þurfa.

Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Fjallabyggð að Grenivík.