Gleðilegan kvenréttindadag!

Myndin er tekin á Kvennafrídaginn 2023, en 24. október það ár voru konur hvattar til að leggja niður…
Myndin er tekin á Kvennafrídaginn 2023, en 24. október það ár voru konur hvattar til að leggja niður vinnu í tilefni kvannaverkfalls 2023.

Eining-Iðja óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum til hamingju með kvenréttindadaginn. 

Ár hvert, þann 19. júní, minnumst við þess að árið 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Árið 1920, með upptöku nýrrar stjórnarskrár, lækkuðu þessi aldursmörk í 25 ára aldur. 

Það eru 111 ár liðin í dag frá þessum merka áfanga sem markaði tímamót í íslensku samfélagi og var afrakstur áralangrar og markvissrar baráttu kvenna fyrir auknum réttindum og jafnri stöðu.

Í dag heiðrum við framlag þeirra sem ruddu brautina og minnumst um leið þess að áfram þarf að vinna að jöfnum tækifærum, réttindum og virðingu.

Gleðilegan kvenréttindadag.