Góðar fréttir - Norðurorka hækkar ekki meira en um 2,5%

Gjaldskrá Norðurorku verður ekki hækkuð um meira en 2,5% um áramótin. Þetta var ákveðið á auka aðalfundi fyrirtækisins í morgun. Meirihluti stjórnar vildi hækka gjaldskrá rafmagns um 5%, hitaveitu um 5,5% og fráveitu um 7% en eigendur fyrirtækisins, fjögur sveitarfélög við Eyjafjörð auk Þingeyjarsveitar, voru sammála um að ekki væri hægt að ganga svo langt. Þetta kemur fram á Akureyri.net

Tryggvi formaður Einingar-Iðju lýsti í gær yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun stjórnar Norðurorku um fyrirhugaðar hækkanir um næstu áramót og fór fram á það við stjórnina að endurskoða þessa ákvörðun strax og halda öllum hækkunum innan við 2,5%. Jafnframt krafðist Tryggvi þess að bæjarstjórn Akureyrar axli sína ábyrgð í málinu og beiti sér fyrir því að fyrirtæki sem er í stærstum hluta í eigu Akureyrarbæjar haldi gefin loforð frá því að framlenging samninga frá því í byrjun október.

Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku. Í umræðum um fjárfestingar- og fjárhagsáætlun fyrirtækisins á fundinum í morgun lýsti Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, „gríðarlegum vonbrigðum“ með þá hækkun sem stjórnin hafði samþykkt, og sagði ekki annað hægt en fylgja þeirri „þjóðarsátt“ að gjaldskrárhækkanir yrðu ekki umfram 2,5%. Fulltrúar annarra eigenda tóku undir það sjónarmið og tillaga Berglindar Óskar í þá veru var samþykkt samhljóða. Nýrri stjórn var falið að „taka fjárfestingar- og fjárhagsáætlun til frekari vinnslu miðað við að gjaldskrá hækki ekki meira en 2,5%,“ eins og segir í tilvísunartillögunni.

"Þetta eru góðar fréttir og ánægjulegt að bæjarstjóri Akureyrar hafi brugðist við gagnrýni gærdagsins og hafi komið fram með þessa tillögu í morgun," segir Tryggvi.  "Eins er ánægjulegt að heyra af samstöðu í eigendahópnum, að standa með þeim markmiðum sam lagt var upp með í framlengingu kjarasamninga." Hann treystir á að ný stjórn Norðurorku taki fjárfestingar- og fjárhagsáætlun til frekari vinnslu hið fyrsta og hafi í huga samfélagslega ábyrgð við afgreiðslu málsins.