Góður gangur í framkvæmdum á Illugastöðum

Eins og kom fram í frétt hér á síðunni sl. föstudag þá var ákveðið að stækka hús félagsins nr. 18 á Illugastöðum. Tíðindamaður heimasíðunnar var á ferð á Illugastöðum fyrr í dag og kíkti á framkvæmdina.

Óhætt er að segja að vel gangi við framkvæmdina. Sl. föstudag var unnið við að steypa grunninn undir viðbygginguna og í morgun var búið að setja gólfbita og byrjað að reisa vegi. Einnig var verið að grafa fyrir lögnum að húsinu.

Myndir frá framkvæmd