Greiðslur úr sjúkrasjóði rúmlega 266 milljónir

Greiðslur úr sjúkrasjóði Einingar-Iðju á árinu 2023 voru rúmar 266 milljónir. Dagpeningagreiðslur fóru í fyrsta skipti yfir 200 milljónir og voru tæpar 205 milljónir.

183 félagsmenn fengu dagpeninga eða dánarbætur, alls rúmar 208 milljónir miðað við rúmar 180 milljónir árið áður. Dagpeningagreiðslur geta verið vegna eigin veikinda, mjög alvarlega veikinda maka eða langveikra og/eða alvarlegra fatlaðra barna.

1.601 fengu styrki, alls um 58,1 milljón miðað við um 41,3 milljónir árið áður. Þarna má m.a. nefna greiðslur vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, viðtöl við sálfræðinga og geðlækna, gleraugnaglerja, heyrnartækja, krabbameinsleitar o.fl.

Alls fengu því 1.784 félagsmenn greitt á síðasta ári úr sjóðnum, alls rúmar 266 milljónir sem er hækkun um rúmar 44,6 milljónir milli ára.

Sjúkrasjóður félagsins