Alls fengu 2.081 félagsmenn greitt á síðasta ári úr sjúkrajóði félagsins rétt rúmar 276 milljónir.
Dagpeningagreiðslur og útfararstyrkir voru rúmar 230 milljónir. Dagpeningagreiðslur geta verið vegna eigin veikinda, mjög alvarlega veikinda maka eða langveikra og/eða alvarlegra fatlaðra barna.
Upphæð greiddra styrkja var um 46 milljónir. Þarna má m.a. nefna greiðslur vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, viðtöl við sálfræðinga og geðlækna, gleraugnaglerja, heyrnartækja, krabbameinsleitar o.fl.