Greitt úr Félagsmannasjóði í gær

Í gær, 1. febrúar, var greitt úr Félagsmannasjóði til starfsmanna sveitarfélaga á félagssvæði Einingar-Iðju. Auk starfsmanna sveitarfélaga fengu einnig starfsmenn Heilsuverndar, Hólmasólar, Fjölsmiðjunar og Hamra, útilífsmiðstöðvar skátar greitt úr sjóðnum.

Alls fengu 1.656 félagsmenn Einingar-Iðju greitt tæpar 95,5 milljónir króna úr sjóðnum að þessu sinni. 

Af hverju fæ ég ekki borgað úr sjóðnum?
Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar þeirra sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Því miður vantar slíkar upplýsingar hjá 305 félagsmönnum eða þá að þær eru rangt skráðar og á því eftir að greiða um 5,8 milljónir úr sjóðnum. Hæsta einstaka upphæðin er rúmar 100.000 krónur þannig að ef þú ert að vinna á þessum vinnustöðum en fékkst ekki greiðslu frá félaginu í gær þá hvetjum við þig til að fara inn á Mínar síður félagsins og skrá inn þessar upplýsingar sem og síma og netfang. 

Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is

Á næstunni verður aftur greitt úr sjóðnum til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.

Félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við kjarasamninga frá árinu 2019 greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð. Auk sveitarfélaga greiða einnig í sjóðinn Heilsuvernd, Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skátar.

Í grein 13.8 í samningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, þar stendur m.a.:

  • Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
  • Félagsmannasjóðurinn er stofnsettur vegna kröfu ASÍ félaga um jöfnun lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra.