Greitt úr Félagsmannasjóði í þriðja sinn

Í gær, 1. febrúar, var greitt úr Félagsmannasjóði í þriðja sinn, samtals rúmlega 83 milljónir króna til 1.576 félagsmanna Einingar-Iðju. Athugið að ekki hefur verið tekin staðgreiðsla af upphæðinni sem greidd er út til félagsmanna. Því þarf að greiða skatta af þessum greiðslum eftir á.

Félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð. Auk sveitarfélaga greiða einnig í sjóðinn Heilsuvernd, Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skátar.

Fyrstu tvö árin hélt Starfsgreinasambandið utan um starfsemi sjóðsins og sá um að greiða út til félagsmanna. Í september í fyrra var ákveðið að hvert félag taki yfir sjóðinn fyrir sína félagsmenn. Umfangið var of mikið fyrir SGS og tókst því ekki að leysa verkefnið með viðunandi hætti. Því sér Eining-Iðja um þessar greiðslur til sinna félagsmanna frá þeim tíma.

Af hverju fæ ég ekki borgað úr sjóðnum?
Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Því miður vantar slíkar upplýsingar hjá um 350 félagsmönnum sem eru starfsmenn sveitarfélaga. Starfsmenn félagsins eru að vinna í að fá þessar upplýsingar frá félagsmönnum en ekki eru allir með skráð símanúmer eða netföng og því er best ef viðkomandi félagsmaður fari sjálfur inn á Mínar síður félagsins og skrái inn þessar upplýsingar.

Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is

Hvað með eldri ár?
Hvað varðar greiðslur til starfsmanna sveitarfélaga sem bárust félagsmannasjóðnum fyrir yfirtöku félagsins er vert að benda á að töluverð vinna er framundan við að gera upp við viðkomandi félagsmenn. Beðist er velvirðingar á því. Þegar þeirri vinnu er lokið verður endanlega gert upp við félagsmenn.

Greitt verður aftur úr sjóðnum 15. febrúar og 2. mars til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.

Í grein 13.8 í samningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, þar stendur m.a.:

  • Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
  • Félagsmannasjóðurinn er stofnsettur vegna kröfu ASÍ félaga um jöfnun lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra.