Gudmannshagi - Einungis á eftir að úthluta einni íbúð

Framkvæmdir ganga vel hjá Bjargi íbúðafélagi í Gudmannshaga á Akureyri og er upphaf leigu áætlað að verði 1. febrúar 2021. Það er aðeins ein 3ja herbergja íbúð sem á eftir að úthluta í Gudmannshaganum. Þetta eru nýjar og fallegar íbúðir sem þarna munu bjóðast, en nú er opið fyrir umsóknir vegna þessara íbúða.

Leiguverð á 3ja herbergja íbúðinni er kr. 139 þúsund á mánuði, húsnæðisbætur koma svo til lækkunar.

Á heimasíðu Bjargs má finna allar nánari upplýsingar https://www.bjargibudafelag.is/ibudir/akureyri-gudmannshagi/