Gulur september; - gulur dagur á morgun

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. 

  • Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu og borðum gular veitingar.
  • Við tökum myndir af gulri stemningu, sjálfu eða mynd af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum. Lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember og merkja @gulurseptember.
  • 10. september er gulur dagur, ef hann lendir á virkum degi. Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10.september.
  • Vinnustaðir og skólar geta líka valið annan dag í september til að halda gulan dag, eftir því sem hentar best.
  • Allir sem geta eru hvattir til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.

Að Gulum september standa fulltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

Nánari upplýsingar um Gulan september má finna á heimasíðunni gulurseptember.is