Gulur september ; - Vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. 

Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.

Að Gulum september standa fulltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

Með því að;

  • Taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem er frá 1. september – 10. október.
  • Hjálpast að við að vekja athygli á Gulum september og því sem hann stendur fyrir.
  • Klæðast gulu, skreyta með gulu eða bjóða upp á gular veitingar.
  • Taka þátt í gula deginum 10. september. 10. september er gulur dagur, ef hann lendir á virkum degi. Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september.
  • Minna á semikommuna (;) sem er kennimerkið fyrir Gulan september en táknið er notað víða um heim til að sýna samstöðu með geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Það vísar til framhalds, seiglu og vonar.

Nánari upplýsingar um Gulan september má finna á heimasíðunni gulurseptember.is