Hætt við kynningarfundi vegna Covid-19

Í næstu viku ætlaði félagið að halda tvo opna kynningarfundi um nýjan kjarasamning við ríkið, en vegna aðstæðna í þjóðfélaginu þarf því miður að hætta við þá. Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, ætlaði að kynna samninginn en þar sem það verður ekki hvetur félagið þá sem hafa spurningar varðandi samninginn að senda tölvupóst á Björn eða hringja í síma 460 3600.

Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS í næstu viku, en rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir til kl. 16 fimmtudaginn 26. mars.

Nýr kjarasamningur við ríkið (Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila)

Helstu atriði samningsins eru sem hér segir:

  • Laun hækka í samræmi við lífskjarasamninginn og hækka frá 1. apríl 2019.
  • Lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verður 30 dagar.
  • Markviss skref til styttingar vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.
  • Vinnuvika vaktavikufólks verður 36 stundir m.v. fullt starf og nýtt launamyndunarkerfi tekið upp. Breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem býður upp á manneskjulegra umhverfi með styttri vinnuviku, þar sem miðað er að bættri heilsu, auknu öryggi og betri samþættingu einkalífs og vinnu.
  • Tekin er upp ný launatafla sem byggir á álagsþrepum en ekki aldurþrepum, í tengslum við það eru stofnanasamningar endurskoðaðir og er ráðstafað allt að 142 milljónum króna vegna þessa.
  • Framlag í orlofssjóð hækkar.
  • Fellt út ákvæði um að heimilt sé að láta fólk gista í tjöldum.
  • Full orlofsuppbót hækkar úr 50.000 kr. árið 2019 í 53.000 kr. árið 2022.
  • Full persónuuppbót (desemberuppbót) hækkar úr 92.000 kr. árið 2019 í 98.000 kr. árið 2022.
  • Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtals í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.