Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum og mikið atvinnuleysi samkvæmt nýrri hagspá ASÍ fyrir árin 2026–2028. Vöxtur hagkerfisins hefur verið hóflegur, í sögulegu samhengi, og útlit er fyrir áframhald þar á. Landsframleiðsla eykst um 1,9% í ár og 1,1% á því næsta, en tekur lítillega við sér árið 2028, samkvæmt hagspánni.
Umtalsverð óvissa ríkir um bæði efnahags- og verðlagsþróun. Óvissan stafar meðal annars af alþjóðlegri þróun en einnig hættunni á að hagkerfið kólni hraðar en spár gera ráð fyrir. Samkomulag á vinnumarkaði um framlengingu kjarasamninga og markvissar aðgerðir hins opinbera draga úr óvissu um verðlagsþróun og skapa einnig forsendur fyrir auknum verðstöðugleika.
Á spátímanum dregur úr innlendri eftirspurn, einkum fjárfestingu. Samdráttur verður í fjármunamyndun á næsta ári (−6,7%), sem skýrist helst af minni atvinnuvegafjárfestingu og snörpum viðsnúningi í íbúðafjárfestingu. Nýlegir hagvísar benda til þess að íbúðamarkaðurinn kólni hratt. Nýjar framkvæmdir, milli mars og september 2026, hafa ekki verið færri í talningum HMS frá 2022 og fullbúnar, óseldar íbúðir, nú í september, voru 1.855, á móti 1.409 í mars. Íbúðafjárfesting dregst saman um 6,7% á þessu ári og 9,0% á því næsta, og hefur mest áhrif til að draga úr hagvexti á árinu 2027. Áhrifin birtast í lækkun á raunverði húsnæðis sem spáð er að lækki um 2,8% í ár og 2,4% á næsta ári.
Helstu breytingar frá fyrri spá hagsviðs ASÍ lúta að þróun verðbólgu og vinnumarkaðar. Atvinnuleysi eykst úr 4,3% í 5,8% á þessu ári, sem jafngildir því að hátt í 14 þúsund manns séu án atvinnu. Batinn verður hægur og spáin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði enn um 4,8% árið 2028, þrátt fyrir vöxt framleiðslu yfir sama tímabil.
Til skemmri tíma verður verðbólga áfram talsvert yfir markmiði Seðlabankans. Gangi spáin eftir verður ársverðbólgan 2026 um 5,5%. Forsendur eru fyrir hjöðnun verðbólgunnar er líður á næsta ár en samkvæmt spánni verður verðbólga 4% að jafnaði á árinu 2027 en hjaðnar í 2,5% árið 2028. Í spánni er fráviksdæmi þar sem skoðuð eru áhrif af 20% hækkun olíuverðs sem leiðir til aukinnar verðbólgu sem nemur 0,3 prósentustigum á árinu 2027.
Lesa má hagspána í heild sinni hér fyrir neðan:
