Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar var kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fyrr í dag, föstudaginn 20. nóvember.
Í skýrslunni er fjallað um yfirstandandi kjarasamningslotu sem hófst í febrúar 2024. Í sumar barst nefndinni beiðni frá stýrihóp stjórnvalda, SA og ASÍ um að vinna greiningu á þróun launa umfram samningsbundnar launahækkanir, það sem kalla mætti launaskrið. KTN tók við þessu verkefni og í skýrslunni að þessu sinni er umfjöllun og tölfræði um launaskrið, þ.e. þróun launa umfram kostnaðarmat sem skipt er í innbyggðar hækkanir, auka og önnur metin áhrif, og launaskrið og óvissu.
Alls eru kaflar skýrslunnar fimm: efnahagsmál, vinnumarkaður, kjarasamningar yfirstandandi samningalotu, laun og launaþróun eftir mörkuðum og heildarsamtökum, og talnaefni um heildarsamtök launafólks eftir mörkuðum.
Auk þess eru viðaukar sem gera grein fyrir gögnum, grunnhugtökum og skipulagi íslensks vinnumarkaðar. Samhliða útgáfu skýrslunnar verður ítarlegu talnaefni um laun og launaþróun miðlað á vef nefndarinnar, ktn.is, en þar má einnig finna eldri skýrslur nefndarinnar og kynningar. Í skýrslunni er notast við tölulegar upplýsingar sem birtar voru fyrir 10. nóvember.
Skýrslan í heild
Viðburðinum var streymt á vef Kjaratölfræðinefndar en þar má einnig finna fylgigögn skýrslunnar.
Samantekt - Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
- Laun, launaþróun og kjarasamningar
- Í yfirstandandi kjarasamningalotu sem hófst í mars 2024 hafa verið undirritaðir kjarasamningar við flest stéttarfélög launafólks, bæði á almennum og opinberum markaði.
- Yfir heildina litið má áætla að gerðir hafa verið um 260 kjarasamningar sem ná til langflests launafólks á vinnumarkaði. Óloknir samningar eru fáir og ná til u.þ.b. prósents af launafólki.
- Í kjarasamningum lotunnar var almennt samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana, þar sem hækkun hvers árs var að lágmarki 23.750 árið 2024 eða 3,25% og sama lágmark eða 3,5% árlega eftir það. Kjarasamningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun.
- Auk launahækkana eru í samningunum ákvæði um skilyrta viðbótarlaunaauka, svo sem kauptaxta- og framleiðniauka á almennum markaði og launatöfluauka á opinberum markaði. Kauptaxtaauki kom til framkvæmda í apríl 2025 (0,58%) og apríl 2026 (0,06%) og launatöfluauki árið 2025 hjá BHM (1,24%) og BSRB (0,75%) hjá ríki.
- Samningar KÍ við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum þar sem þeir byggja á innleiðingu virðismatskerfis og fela í sér sérstaka innáborgun gerða á grundvelli samkomulags um virðismatsvegferðar kennara.
- Forsendur kjarasamninga um verðbólgu í ágúst 2026 stóðust ekki þar sem verðbólga mældist 5,6% en viðmiðið var 4,7%. Í október 2026 náðist samkomulag SA við SGS, Eflingu og Samiðn um að samningar héldu gildi sínu en styttust um einn mánuð. Samkomulag SA við VR, LÍV, Rafiðnaðarsamband Íslands, VM og Matvís heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði haustið 2027 ef tiltekin verðbólguviðmið standast ekki. Ríkisstjórnin, Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu auk þess yfirlýsingu 8. október um aðgerðir til að ná niður verðbólgu.
- Sundurliðuð gögn KTN um launaþróun eftir mörkuðum byggja á launarannsókn Hagstofu Íslands og liggja fyrir frá upphafi núverandi lotu fram til júní 2026.
- Hækkun vísitölu grunntímakaups mældist 18,4% á almennum markaði á tímabilinu febrúar 2024 til júní 2026, 19,6% hjá ríki, 18,8% hjá Reykjavíkurborg og 20,1% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda þvert á vinnumarkaðinn.
- Hækkun grunntímakaups á vinnumarkaðinum í heild mældist 18,7% frá febrúar 2024 til júní 2026, en almennt verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs hækkaði um 12,2% á sama tíma. Kaupmáttur grunntímakaups jókst því um 5,8%.
- Regluleg laun fullvinnandi á vinnumarkaði mældust að meðaltali 935 þúsund krónur í maí 2026 og miðgildi reglulegra launa 843 þúsund krónur.
- Meðaltal grunnlauna, reglulegra launa og reglulegra heildarlauna mældist hæst á almennum markaði og næsthæst hjá ríkinu. Miðgildi reglulegra launa var hæst hjá ríkinu. Meiri munur mældist á meðaltali og miðgildi launa á almennum markaði en hjá hinu opinbera, sem endurspeglar meiri dreifingu launa á almennum markaði.
- Launabreytingar frá febrúar 2024 eftir launastigi sýna að prósentuhækkun var almennt mest hjá þeim sem höfðu lægst tímakaup á almennum markaði, en hjá ríki og sveitarfélögum er myndin ólíkari milli hópa og mótast meðal annars af sérstökum hækkunum KÍ vegna virðismatsvegferðar. Í skýrslunni er ný greining á launabreytingum umfram samningbundnar hækkanir, þar sem vísitala grunntímakaups er borin saman við kostnaðarmat kjarasamninga í lotunni. Launabreytingar umfram kostnaðarmat skýrast að hluta af innbyggðum hækkunum, aukum og öðrum metnum breytingum. Mat á innbyggðum hækkunum er frummat og niðurstöðurnar eru því birtar með fyrirvara.
- Efnahags- og vinnumarkaðsmál
- Hagvöxtur hefur verið lítill síðustu ár. Landsframleiðsla dróst saman um 0,9% árið 2024 og jókst um 1,1% árið 2025 samkvæmt endurskoðuðum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands, og um 1,3% á fyrri hluta ársins 2026 miðað við sama tíma árið áður.
- Dregið hefur úr vexti einkaneyslu en kortavelta jókst um 0,4% á þriðja ársfjórðungi. Vöruútflutningur dróst saman um 8,7% á fyrri hluta ársins en bætt viðskiptakjör vega á móti. Vöxtur ferðaþjónustu hefur verið lítill frá 2024.
- Framleiðni vinnuafls dróst saman um 3,4% árið 2024 en jókst um 2,7% árið 2025, og bráðabirgðatölur benda til tæplega 2% vaxtar á fyrri hluta ársins 2026.
- Dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði. Fjölgun starfandi fólks er nær engin, lausum störfum hefur fækkað og atvinnuleysi hefur aukist, einkum meðal ungs fólks og fólks með erlent ríkisfang. Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar mældi 5,1% atvinnuleysi í september 2026 samanborið við 3,2% ári áður, en samkvæmt Vinnumálastofnun var hlutfall fólks á atvinnuleysisskrá 4,0% samanborið við,5% ári áður.
- Verðbólga hefur reynst þrálátari en spár gerðu ráð fyrir og mældist 5,9% í október. Stríðsátök í Persaflóa hafa átt stóran þátt í auknum verðþrýstingi. Horfur um verðbólgu ráðast að verulegu leyti af þróun stríðsátaka og áhrifum þeirra á alþjóðlegt orkuverð.
- Til að bregðast við aukinni verðbólgu hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti um samtals 0,75 prósentustig á árinu, í 8%, og hélt þeim óbreyttum í október. Lánveitendur hafa hækkað óverðtryggða vexti.
- Fjárhagsstaða heimila er almennt sterk. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist þrátt fyrir verðbólgu og hærri vexti, og skuldir heimila hafa lækkað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.
Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um tölfræði vegna kjarasamningsgerðar. Nefndin hóf störf í desember 2019 og eru fulltrúar í henni frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, BHM, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins og Hagstofu Íslands. Ríkissáttasemjari hýsir nefndina og leggur til fundar- og starfsaðstöðu. Sérfræðingar nefndarinnar eru hagfræðingarnir Guðrún Svavarsdóttir og Marinó Melsted.