Hjálparsími Rauði krossins á pólsku

Rauði krossinn býður nú upp á þjónustu fyrir pólskumælandi einstaklinga á Hjálpasíma Rauða krossins 1717 og netspjallinu www.1717.is

Þjónustan verður opin á fimmtudögum frá kl. 20-23.

Hópur pólskumælandi sjálfboðaliða hefur gengið til liðs við verkefnið og hlotið alla viðeigandi þjálfun til að sinna svörun. Markmiðið er að ná til pólskumælandi einstaklinga sem búa hér á landi og bjóða upp á stuðning og virka hlustun.

Það er ókeypis að hafa samband (t.d. þarf enga inneign til að hringja) og þjónustan er ætíð nafnlaus og í trúnaði.

Um 1717

1717 hefur frá árinu 2004 tekið á móti hundruði þúsunda erinda, í gegnum síma og netspjall, frá einstaklingum sem þurfa á aðstoð að halda.  

Árlega berast um 15 þúsund erindi á borð 1717 og eru þau jafnólík og þau eru mörg. Flest snúa þau að sálrænum og félagslegum vanda á borð við þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugleiðingar, félagslegri einangrun og fjárhagsáhyggjum svo eitthvað sé nefnt.