Mikilvægt er að taka vel á móti nýju starfsfólki hvort sem um er að ræða sumarstarfsfólk eða þá sem eru að koma í framtíðarstarf.
Vinnustaðir hafa einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þá sem eru að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði og nýtt starfsfólk getur haft ýmislegt nýtt og spennandi fram að færa á vinnustaðnum.
VIRK og Vinnueftirlitið hafa undanfarin misseri staðið fyrir vitundarvakningunni Hugsum um: Höfuð, herðar, hné og tær sem ætlað er að vekja athygli á því að vinnuumhverfið hefur áhrif á starfsfólk frá toppi til táar - sjá nánar hér
Atvinnurekendur eru hvattir til að taka vel á móti nýju starfsfólki, sérstaklega ungu fólki sem er að hefja störf.