Hús nr. 18 á Illugastöðum komið í notkun á ný eftir stækkun

Um síðustu helgi var hús félagsins nr. 18 á Illugastöðum tekið í notkun á ný eftir stækkun og algjörar endurbætur á gamla hlutanum. 

Í september ákvað stjórn Einingar-Iðju að láta stækka húsið og hófust framkvæmdir í byrjun október. Eftir stækkun er húsið um 75 fermetrar að stærð, en viðbyggingin sjálf er um 30 fermetrar. 

Vægt til orða tekið er húsið stórglæsilegt og er óhætt að óska félagsmönnum til hamingju með það.

Fleiri myndir úr húsinu má sjá hér og nokkrar myndir frá framkvæmdum má sjá hér