Hús félagsins í Húsafelli tekið frá fyrir Grindvíkinga

Kæru félagsmenn.

Stjórnvöld leituðu til stéttarfélaga með að lána orlofseignir til íbúa Grindavíkur sem þurft hafa að flýja heimili sín og var ákveðið fyrr í vikunni að bjóða fram nýtt hús félagsins í Húsafelli.

Því er búið að loka fyrir leigu á því fyrir félagsmenn til að byrja með til 3. janúar nk. 

Við vonum að félagsmenn sýni þessari aðgerð skilning og teljum afar mikilvægt að stéttarfélög og önnur félagasamtök sem geta leggi sitt af mörkum til að aðstoða íbúa Grindavíkur eins og frekast er unnt.