Húsbílar/hjólhýsi við bústaði í orlofshúsabyggðum

Félagið hefur fengið fyrirspurnir um það hvort leyfilegt sé að hafa hjólhýsi/húsbíl við bústaði í orlofshúsabyggð. 

Vegna þessa vill félagið taka fram að það er ekki leyfilegt að gista í hjólhýsum eða húsbílum við bústaðina í orlofshúsabyggð, oft eru tjaldsvæði ekki langt undan og er fólki bent á að nýta sér það.

Þetta er fyrst og fremst af öryggisástæðum, rafmagnsnotkun o.fl. og oft er aðgengi heldur ekki gott að bústöðunum með stóra bíla eða hjólhýsi.