Hver ber ábyrgð? - Af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi

Hádegisfundur í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars nk.

Til fundarins bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Fíh, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF.

Fundurinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, sal FG á 2. hæð og streymt á Zoom milli kl. 11:30 og 13:00. Hann fer fram á íslensku en rittúlkun verður á ensku.

Upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.

Fundarstýra: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Fyrirlesarar:

  • Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðjöf. Fæðingarorlof - reynsla, þróun og framtíðarsýn - 20 mín.
  • Maya Staub, sérfræðingur hjá Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins. Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs barnafjölskyldna á Íslandi.
  • Halldóra Guðmundsdóttir, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla. Barnið vex en brókin ekki.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður með Anna Maria Milosz - skrifstofufulltrúi hjá Reykjavíkurborg , Guðnýju Björk Eydal - prófessor í félagsráðgjöf, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur - hagfræðingur BSRB, Sveinlaugu Sigurðardóttur - varaformaður Félags leikskólakennara.