Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu?

Vinnueftirlitið vekur athygli á málþingi um hvernig hægt sé að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu í skólum sem verður haldið á Grand hóteli fimmtudaginn 12. mars nk. og í beinu streymi. Málþingið er öllum opið. Hægt verður að mæta á staðinn eða flylgjast með í streymi en nauðsynlegt er skrá þátttöku. Skráning fer fram hér.

Málþingið er haldið í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum 2023-2025.

Kannanir sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum misserum hafa gefið til kynna að starfsfólk í leik- og grunnskólum upplifir meira andlegt áreiti en starfsfólk í mörgum öðrum starfsgreinum, sem undirstrikar mikilvægi þess að hlúa þurfi sérstaklega að vellíðan þess og vinnuumhverfi.

Niðurstöður samstarfsverkefnis sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Tilgangur málþingsins er að miðla þeim lærdómi sem af verkefninu hlaust og gefa fleiri vinnustöðum tækifæri á að nýta hann.

Málþingið hefst klukkan 12.30 og stendur til 16:00.

Fundarstjóri verður: Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.

Málþingið er öllum opið. Hægt verður að mæta á staðinn eða flylgjast með í streymi en nauðsynlegt er skrá þátttöku. Skráning fer fram hér.

Dagskrá

TímiErindiFyrirlesari

12:30–12:40

Opnun á málþingi

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins

12:40-13:10

Samstarfsverkefni um vinnustaðamenningu skóla - Hvernig gekk og hvað höfum við lært?

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

 

 

 

13:10-14:10

Sunnulækjarskóli: Teymisvinna styrkir sálrænt öryggi, vellíðan starfsfólks og vinnustaðamenningu

Heiðarborg: Bætt samskipti og samskiptasáttmáli styrkja traust og vinnustaðamenningu

Rofaborg: Skýr hlutverk og skýrt verklag bæta samskipti, vellíðan og vinnustaðamenningu

Klappir: Valdeflandi stjórnun og forysta með markvissri endurgjöf styrkja vellíðan og vinnustaðamenningu

Brekkuskóli: Samvera og óformleg samskipti styrkja samstarfsvilja, vellíðan og vinnustaðamenningu

 

 

 

Þátttökuskólar í samstarfsverkefninu fjalla um reynslu sína af verkefninu

14:10-14:20

Hagnýting verkefnisins: Hvað svo?

Friðný Björg Sigurðardóttir, mannauðsráðgjafi hjá Akureyrarbæ

14:20–14:40

Kaffihlé

 

14:40–15:10

Stefna, aðhald og menning - Dugar að krossa fingur og vona það besta?

Kristín Gísladóttir, skólastýra á leikskólanum Uglukletti

15:10–16:00

   
 

Vinnustaðamenning er ábyrgð okkar allra. Hver er lærdómurinn og hvað gerum við nú?

Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Háskóla Íslands

 

Mikilvægi verkefnisins og lærdómur

Sigrún B. Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá Kennarasambandi Íslands

 

Við verðum að horfa á heildarmyndina

Anna Ingadóttir, sérfræðingur á stjórnsýslusviði hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Nánar um samstarfsverkefnið

Nánar má lesa um samstarfsverkefnið hér á vefnum. Þar má jafnframt nálgast skýrslu um hugmyndafræðilegan bakgrunn þess, framkvæmd og mat á árangri.