Hvernig virkar ferðaávísunin?

Síðastliðinn föstudag sögðum við frá því að nú er hægt að kaupa ferðaávísun hjá félaginu á fjölmörg hótel og gistiheimili um allt land. Hér fyrir neðan má finna umfjöllun sem segir nánar frá því hvernig þessi ferðaávísun virkar. 

Ferðaávísunin er rafræn og er geymd á þínu svæði á orlofsvefnum. Ávísunin leysir af hólmi gistimiða sem hingað til hefur þurft að nálgast til félagsins og framvísa á fyrir fram ákveðnum gististað. Þessu nýja fyrirkomulagi fylgir meira frelsi og stórauknir valmöguleikar, enda er ávísunin ekki bundin við tilteknar dagsetningar, einstakt gistiheimili, hótel eða hótelkeðju. 

Með því að skrá sig inn á orlofsvefinn má sjá hvaða gististaðir eru í boði. Þegar þú hefur fundið spennandi valkost smellir þú á „Kaupa“. Þegar þú gengur frá greiðslu fyrir ferðaávísunina drögum við tiltekna upphæð frá tilboðsverðinu. 

Við niðurgreiðum gistinguna um 20% af valinni upphæð að hámarki kr. 15.000 á hverju almanaksári.

Þú pantar gistingu þegar þér hentar og greinir frá því að þú hyggist greiða fyrir gistinguna með ferðaávísun frá félaginu. Þegar þú mætir á staðinn nægir að gefa upp kennitölu.

Ávísunin er rafræn og rennur ekki út. Þú getur notað hana þegar þú vilt, að undangenginni bókun hjá viðkomandi gististað. Ef hótelið eða gistiheimilið sem þú valdir þér er fullbókað, þegar þú hyggst leggja land undir fót, geturðu notað ávísunina upp í gistingu hjá hvaða öðrum samstarfsaðila okkar sem er.  

Ef þú rekst einhvern tíma á annað betra tilboð frá sama hóteli eða gistiheimili, geturðu notað ávísunina upp í það tilboð, eða notað hana að hluta til. Þú ert ekki bundinn af því tilboði sem þú valdir þér upphaflega. 

Þú getur fengið ávísunina endurgreidda hvenær sem er, en þá aðeins þá upphæð sem þú lagðir sjálfur út. Þá punkta sem þú notaðir við kaupin, færðu einnig til baka.

Hér fyrir neðan má finna nokkrar spurningar og svör um þessa nýju ferðaávísun.

Hvað er ferðaávísun?

  • Ferðaávísun er inneign, sem þú getur notað til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar. Þú ert ekki skuldbundinn til að nota ávísunina á tilteknu hóteli/gistiheimili, eftir að hún hefur verið keypt. Upphæðina getur þú notað hjá hvaða samstarfsaðila okkar sem er.

Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?

  • Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum stéttarfélaganna, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.

Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?

  • Á orlofsvefnum geturðu skráð þig inn, eins og þegar þú sækir um orlofshús, og valið „Ferðaávísun“. Þá ferð þú yfir á síðu þar sem allar upplýsingar koma fram. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð herbergis eða innifalinni þjónustu.

Þarf ég að binda mig við tiltekið hótel?

  • Nei, þú pantað þér gistingu hjá hvaða samstarfsaðila sem er, og notað ferðaávísunina sem greiðslu.

Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?

  • Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. Með þessu verður fylgst náið. Gott er að fylgjast með gildistíma þeirra tilboða sem þú hefur augastað á.

Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég hana?

  • Þú ferð inn á orlofsvef þíns stéttarfélags og smellir á „Ferðaávísun“. Þú velur upphæð ávísunarinnar og greiðir fyrir með greiðslukorti. Ávísunin verður á þínu svæði á orlofsvefnum. Þú þarft aðeins að gefa upp kennitöluna þína þegar þú mætir á staðinn. Þú þarft ekkert að hafa með þér.

Hvernig nota ég ferðaávísunina?

  • Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.

Get ég fengið ávísunina endurgreidda?

  • Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út. Hafi punktar verið teknir af þér við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.

Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið restina til baka?

  • Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan sem ekki hefur verið nýttur. Endurgreiðslan verður í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.

Rennur ávísunin út?

  • Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um endurgreiðslu hvenær sem er, á þínu svæði á orlofsvefnum.

Ég hef ekki aðgang að tölvu eða snjallsíma eða er ekki með rafræn skilríki. Hvernig get ég keypt ferðaávísun?

  • Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu félagsins ef þig vantar aðstoð. Við hjálpum þér með ánægju og reynum að leysa málin.