Hýr vinnumarkaður

Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7. ágúst klukkan 16:00.

Föstudaginn næstkomandi standa ASÍ, BHM, BSRB og KÍ fyrir samtali um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar.

Viðburðurinn fer fram í Iðnó og verða léttar veitingar í boði.

Dagskrá fundarins:

Kl. 16-16:05 – Opnun fundar – Þorbjörg Þorvalds, fundarstýra, opnar fundinn formlega

Kl. 16:05-16:15 – Erindi –  Efnahagsleg staða hinsegin fólks – Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku

Kl. 16:15-16:25 – Erindi – Hinsegin vottun – Kári Garðasson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78

Kl. 16:25 – 16: 45 – Sófaspjall – Þorbjörg stýrir. Í sófa verða: Erna Dís Ingólfsdóttir, mannauðsstjóri Íslandshótela, Hafþór Óskarsson, grunnskólakennari, Irma Alexandra, forritari og Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ

Hlökkum til að sjá ykkur, öll velkomin!

Viðburðurinn á Facebook