Íbúð á Spáni - opið fyrir bókanir

Mynd frá svæðinu Playa Flamenca á Spáni fengin að láni af Tripadvisor. Á innfelldu myndinni má sjá í…
Mynd frá svæðinu Playa Flamenca á Spáni fengin að láni af Tripadvisor. Á innfelldu myndinni má sjá íbúðakjarnann sem íbúðin er í. Von er á betri myndum af svæðinu og íbúðinni milli jóla og nýárs.

Félagsmenn geta nú bókað íbúð á Spáni, fyrsta leiga er í boði frá og með 6. janúar 2026. Nú gildir reglan fyrstur bókar, fyrstur fær. Hægt er að leigja eina eða tvær samfelldar vikur. (ATH! hafa þarf samband við félagið ef leigja skal 2 vikur) Skiptidagar eru á þriðjudögum.

Leiguverð per. viku er kr. 50.000, en einnig þarf að skilja eftir við brottför þrifagjald, 150 evrur í seðlum. Innifalið í leigu er lín, handklæði, rafmagn og net.

Íbúð í lokuðum íbúðakjarna í Play Flamenca
Um er að ræða íbúð á góðum stað í Playa Flamenca á Spáni, í lokuðum íbúðakjarna og samanstendur af tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Hægt er að aka inn í kjarnann á tveimur stöðum inn um rafmagnshlið. Bílastæði eru innan kjarnans og hafa íbúar einnig aðgang að sameiginlegri sundlaug. Staðsetningin er góð en stutt er alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Sundlaugabarinn vinsæli þar sem íslendingar hittast alla föstudaga er í aðeins 10 mínútna göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Þegar komið er að húsinu er gengið upp stiga á læstar svalir og þaðan er farið inn í íbúðina. Gengið er inn í alrými þ.e. stofu/borðstofu og eldhús. Á hægri hönd eru svo tvö svefnherbergi, bæði með góðum innbyggðum skápum. Baðherbergi er inn af öðru herberginu en einnig er annað baðherbergi með þvottavélaaðstöðu og sturtu. Loft í baðherbergjum eru niðurtekin með innbyggðum Led ljósum. Inn af eldhúsinu er svo útgengt á lítinn pall en þaðan er hringstigi upp á mjög rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar, þar eru sólbekkir, stólar, sófi, borð og gasgrill. Eldhúsið er með öllum nýjustu tækjum, tvöföldum Samsung ísskáp og öllu leirtaui. Loftkæling er í íbúðinni.

Nánari upplýsingar og betri myndir eru væntanlegar á milli jóla og nýars en nú þegar er hægt að bóka íbúðina sex mánuði fram í tímann inn á Mínum síðum félagsins.

Upplýsingar um svæðið af Spain-Holiday.com