Íbúðin á Spáni - opið fyrir umsóknir á netinu

Síðustu þrjú sumur hefur félagið boðið upp á orlofskost á Spáni fyrir félagsmenn og voru viðtökurnar það góðar að ákveðið var að bjóða upp á þessa íbúð enn á ný næsta sumar.

Um er að ræða efri sérhæð í nýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu sem er í um 30 mín. fjarlægð frá Alicante, á svæði sem heitir Casa Tarife. Í boði verða níu leigur, tvær vikur í senn, og verða skiptidagar á þriðjudögum. Verð fyrir tvær vikur verður kr. 105.000, innifalið í verðinu er þrifagjald. Leiga hefst 25. maí og mun standa til 28. september. 

ATHUGIÐ! Umsókn þarf að skila til félagsins fyrir 1. mars 2021, rafrænt í gegnum Orlofsvef félagsins. Það þarf að skrá sig inn á Orlofsvefinn með rafrænum skilríkjum og velja UMSÓKNIR. Úthlutun verður lokið nokkrum dögum síðar.  

Íbúðin er mjög vel búin, gólfhiti er í húsinu og loftkæling í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið og þaðan er gengið upp í íbúðina sjálfa sem er öll á einni hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er síðan gengið uppá stórar einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu, þar eru sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, kolagrill, markísa og æðislegt útsýni. Fallegur sundlaugargarður er inná milli húsanna og hverfið er mjög rólegt og gott. Matvöruverslun og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn. Það tekur um það bil 30 mínútur að ganga í La Zenia mallið. 

ATH! Mjög gott er að vera með bílaleigubíl á þessu svæði. 

Nánari upplýsingar um íbúðina, svæðið og fleiri myndir