Íslenskur vinnumarkaður 2023: Sérgreining Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins

Á heimasíðu ASÍ segir að rétt er að tilkynna um að sérgreining Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um stöðu launafólks, í tengslum við skýrslu ASÍ um íslenskan vinnumarkað er nú aðgengileg. Sérstök áhersla er lögð á erlent launafólk og vinnumarkaðsbrot sem það verður fyrir.

Í sérgreiningunni kveðast 56% innflytjenda hafa orðið fyrir vinnumarkaðsbrotum á síðustu 12 mánuðum. Alls segjast 37% þátttakenda hafa orðið fyrir slíku misrétti á þessu tímabili.

Greining Vörðu leiðir enn fremur í ljós mismunun gagnvart fólki með annan húðlit en hvítan.

Vinnumarkaðsskýrslan í heild sinni dregur fram þá tvískiptingu sem er til staðar á íslenskum vinnumarkaði; hann samanstendur af heimafólki annars vegar og hins vegar innflytjendum. Síðarnefndi hópurinn stendur mun hallari fæti gagnvart brotum atvinnurekenda á vinnumarkaði.

Skýrslan leiðir einnig í ljós að ungt fólk er mun líklegra en hinir eldri að verða fyrir vinnumarkaðsbrotum.