Sameiginleg yfirlýsing ASÍ, SA og fjármálaráðuneytisins var undirrituð í gær. Hún varðar leiðina að varanlegri lausn á jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða og lausn á gagvirkri víxlverkun almannatrygginga og lífeyrissjóða.
Yfirlýsingin felur í sér sameiginlega sýn á viðfangsefnið og ásetning um að hrinda breytingum í framkvæmd á komandi ári.
Í framhaldinu er stefnt að því að lögð verði upp verkefnaáætlun um hvernig bæta eigi samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða og auka virkni á vinnumarkaði með áherslu á starfsendurhæfingu og endurkomu til vinnu án þess að heildarkostnaður samfélagsins vegna veikinda og örorku aukist. Þessi áfangi verður unnin í samvinnu fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðisráðherra og aðila vinnumarkaðarins í samráði við sérfræðinga á sviði starfsendurhæfingar.
Yfirlýsinguna undirrituðu Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.