Jólablaðið er komið á netið

Jólablað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun og verður borið út miðvikudaginn 13. desember nk. með Dagskránni á öll heimili á félagssvæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 36 síður að stærð, má m.a. finna viðtal við fyrrum formann félagsins, Bjössa Snæ. Fjallað er um Mínar síður, þrjár ferðir sem verða í boði fyrir félagsmenn á næsta ári, styrk til Velferðarsjóðs, breytingar á reglum fræðslusjóða, greiðslur úr félagsmannasjóði og margt fleira.

Þá býður Múlaberg lesendum upp á gómsætar kræsingar, ný Gallup könnun félagsins kemur einnig við sögu og margt fleira má finna í blaðinu.