Jólablaðið er komið á netið - borið út í næstu viku

Nú í vikunni var jólablað félagsins prentað í Ásprent og verður það borið út í næstu viku, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 40 síður, má m.a. finna ferðasögu úr utanlandsferð félagsins og umfjöllun úr tveimur innanlandsferðum sem félagið stóð fyrir á árinu fyrir félagsmenn. Einnig má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári. Farið er stuttlega yfir stöðuna í samningaviðræðum við ríki og sveitarfélög. Fjallað er um nýja könnun félagsins,Drífa Snædal, forseti ASÍ, fjallar um fyrsta árið í stól forseta og margt fleira má finna í blaðinu . Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér miðvikudaginn 18. desember nk. en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.