Kaffitíminn með ASÍ-UNG

Vert er að benda á að ASÍ-UNG byrjaði nýlega með podcast undir nafninu “Kaffitíminn með ASÍ-UNG”

Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur fyrir fólk til þess að fræðast um málefni vinnumarkaðarins. Hér ætla þau að ræða réttindi, skyldur, stéttarfélög, samfélagsmál og allt sem snertir ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þau ætla að gefa innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, ræða mál líðandi stunda, fá til sín góða gesti og reyna að setja flókin mál vinnuréttarins upp á léttari nótur.
Þau stefna að því að vera létt, skemmtileg og fræðandi.

Búið er að setja tvo þætti í loftið. Í fyrsta þætti var aðeins farið yfir það hver þau eru, hvaðan þau koma og hvert þau ætla að stefna. Í þætti tvö var fjallað um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og farið yfir stéttarfélögin og hlutverk þeirra.

Það er hægt að hlusta á þau í Apple podcast og á Spotify.

Þau vilja endilega heyra frá ykkur ef það er eitthvað sem þið viljið að þau fjalli um. Það má senda skilaboð til þeirra í gegnum Facebook eða á instagram’inu þeirra.