ASÍ-UNG er með podcast undir nafninu “Kaffitíminn með ASÍ-UNG”. Fyrr í vikunni fóru tveir þættir í loftið, en framundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins. Af því tilefni var ákveðið að bjóða þeim tveimur sem boðið hafa sig fram til forseta í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar. Sömu meginspurningar voru lagðar fyrir báða frambjóðendur.
Hægt er að hlusta á viðtölin bæði á Spotify og Apple podcast
Georg Pál Skúlason
Arnaldur Grétarsson
Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur fyrir fólk til þess að fræðast um málefni vinnumarkaðarins. Hér eru þau að ræða réttindi, skyldur, stéttarfélög, samfélagsmál og allt sem snertir ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þau ætla að gefa innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, ræða mál líðandi stunda, fá til sín góða gesti og reyna að setja flókin mál vinnuréttarins upp á léttari nótur. Þau stefna að því að vera létt, skemmtileg og fræðandi.
Eldri þættir
Það er hægt að hlusta á þau í Apple podcast og á Spotify.
Þau vilja endilega heyra frá ykkur ef það er eitthvað sem þið viljið að þau fjalli um. Það má senda skilaboð til þeirra í gegnum Facebook eða á instagram’inu þeirra.