How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Vert er að minna á að nú stendur yfir könnun Vörðu um stöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Í lok júní var sendur tölvupóstur á alla félagsmenn með skráð netfang hjá Einingu-Iðju. Það tekur um 15 mínútur að svara og öll sem taka þátt eiga möguleika á að vinna 40.000 króna gjafakort.
Könnunin er árleg og lögð fyrir félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Markmið hennar er að varpa ljósi á stöðu launafólks hvað varðar fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu. Í ár er auk þess lögð sérstök áhersla á kanna starfsumhverfi launafólks, stöðu ungs fólks og innflytjenda. Við hvetjum þig til að svara en niðurstöður könnunarinnar eru mikilvægar verkalýðshreyfinginni til að berjast fyrir betri kjörum og lífsskilyrðum.
Það er Varða rannsóknarsetur sem er að framkvæma þessa könnun og er þetta í sjötta sinn sem slík könnun er framkvæmd.
Við hvetjum alla félagsmenn sem fá tölvupóst frá félaginu til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.
Varða rannsóknarsetur er í eigu ASÍ og BSRB.
Gott að vita: