Kristján Þórður Snæbjarnarson tekur við embætti forseta ASÍ

Á vef ASÍ segir að Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, hafi í dag, fimmtudaginn 11. ágúst, tekið við embætti forseta ASÍ. Embættinu mun hann gegna fram að þingi ASÍ sem fram fer í októbermánuði.

Kristján Þórður tekur við embætti forseta af Drífu Snædal sem sagði af sér í gær.

Kristján Þórður var sjálfkjörinn 2. varaforseti á 43. þingi ASÍ haustið 2018 og varð 1. varaforseti Alþýðusambandsins við afsögn Vilhjálms Birgissonar, núverandi formanns Starfsgreinasambands Íslands,  í aprílmánuði 2020. Kristján var sjálfkjörinn 1. varaforseti á þingi ASÍ í október 2020.

Kristján Þórður hefur verið formaður Rafiðnaðarsambands Íslands frá 2011. Árið 2008 var hann kjörinn formaður Félags rafeindavirkja.

Kristján Þórður fæddist í Keflavík árið 1980, er kvæntur og þriggja barna faðir.