Krossgáta og getraun - Síðasti dagur til að senda inn svör

Félagið minnir á að skilafrestur til að senda inn lausn úr krossgátu og svar við getraun sem birtust í síðasta jólablaði félagsins rennur út kl. 16 í dag, mánudaginn 8. janúar 2024. Vert er að benda á að það þarf að skila rafrænt í gegnum heimasíðu félagsins.

Veit verða tvenn peningaverðlaun í krossgátunni kr. 20.000 og kr. 10.000 og tvenn í getrauninni kr. 20.000 og kr. 10.000.

Hér má finna hlekki til að senda inn lausn úr krossgátu og einnig svar úr getraun sem birtist í blaðinu.

Dregið verður úr réttum innsendum svörum fljótlega eftir að skilafresti lýkur og haft verður samband við vinningshafana.