Kvennaverkfallið 1975, Hvað hefur áunnist eru rauð flögg á lofti?

Föstudaginn 6. mars nk. verður hádegisfundur í anddyri Borga við Norðurslóð sem ber yfirskriftina Kvennaverkfallið 1975, Hvað hefur áunnist eru rauð flögg á lofti? Húsið opnar kl. 11:30 og dagskrá hefst kl. 12:10. Fundarstjóri verður Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri.

Erindi flytja:

  • Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor í félagsfræði við HA – Jafnréttismál undanfarna áratugi – ríkir jöfnuður í launaðri og ólaunaðri vinnu?
  • Björn Grétar Baldursson flytur einnig erindi, hann heldur úti “Pabbalífið” á Instagram – aðdragandi og viðbrögð við „Pabbalíf“ og vangaveltur um stöðu feðra með ung börn

Léttar veitingar verða í boði.
Aðgangseyrir er 2000 kr og rennur óskiptur til Kvennaathvarfsins á Akureyri.
Enginn posi verður á staðnum en hægt verður að leggja inn á reikning Zontaklúbbs Akureyrar:
0162-26-005794
kt.710269-0339

Zontaklúbbur Akureyrar
Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna
Soroptimistaklúbbur Akureyrar
Femínistafélag MA