Kynning fyrir trúnaðarmenn

Í upphafi fundar er Anna og Tryggvi voru að bjóða trúnaðarmenn velkomna á kynninguna.
Í upphafi fundar er Anna og Tryggvi voru að bjóða trúnaðarmenn velkomna á kynninguna.

Í gær fór fram kynning í sal Einingar-Iðju á Akureyri fyrir trúnaðarmenn félagsins þar sem farið var yfir hlutverk og mikilvægi trúnaðarmanna. Fjallað var um helstu þætti sem snúa að ábyrgð, réttindum og skyldum trúnaðarmanna, auk kynningar á starfsemi félagsins og öðrum mikilvægum atriðum sem tengjast hlutverkinu. Góð mæting var á kynninguna sem Rut Pétursdóttir, Mannauðs- og fræðslustjóri félagsins, sá um. Formaður og varaformaður voru viðstödd í upphafi kynningar og buðu trúnaðarmennina velkomna og sögðu nokkur orð en svo tók Rut við.

Kynningin núna var bæði fyrir nýja og eldri trúnaðarmenn en í framtíðinni verður nýjum trúnaðarmönnum boðið á kynningu sem þessa, en hún er mikilvægur grunnur fyrir öfluga og markvissa hagsmunagæslu. Þessi kynning fór fram á íslensku en þann 2. mars nk. verður eins kynning sem mun fara fram á ensku.

23. mars verður aftur boðið upp á svona kynningu á íslensku og 14. apríl verður hún aftur í boði á ensku.

Allir trúnaðarmenn félagsins fá boð um að mæta á þessar kynningar og voru um 20 sem þáðu boðið að þessu sinni.