Kynning fyrir trúnaðarmenn

"Þetta er góð leið fyrir trúnaðarmenn í minni hópum en oft áður til að bera saman bækur sínar og fara yfir ýmislegt sem kemur upp á í þeirra starfi."

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Undanfarið hefur félagið boðið trúnaðarmönnum upp á að mæta á kynningar í sal Einingar-Iðju á Akureyri þar sem farið er yfir hlutverk og mikilvægi trúnaðarmanna. Fjallað er um helstu þætti sem snúa að ábyrgð, réttindum og skyldum trúnaðarmanna, auk kynningar á starfsemi félagsins og öðrum mikilvægum atriðum sem tengjast hlutverkinu. Kynningar sem þessi er mikilvægur grunnur fyrir öfluga og markvissa hagsmunagæslu.

Í morgun fór fram ein slík og sá Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður félagsins, um hana. Elsa Hrönn segir að mjög góðar umræður hefðu skapast í morgun. "Þetta er góð leið fyrir trúnaðarmenn í minni hópum en oft áður til að bera saman bækur sínar og fara yfir ýmislegt sem kemur upp á í þeirra starfi."

Kynningin fór að þessu sinni fram á íslensku, en þær hafa einnig verið í boði á ensku. 

Næstu kynningar

  • 27. janúar 2027 (íslenska)
  • 9. febrúar 2027 (enska)
  • 9. mars 2027 (íslenska)

Allir trúnaðarmenn félagsins fá sent boð með góðum fyrirvara á þessar kynningar og hefur þátttaka verið góð.