Kynningarefni - Nýr samningur við SA 2024-2028

Þann 7. mars undirritaði Starfsgreinasamband Íslands, ásamt Eflingu og Samiðn, nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Um er að ræða langtímasamning til fjögurra ára sem gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. 

Hér má finna kynningarefni um nýja samninginn sem Starfsgreinasambandið tók saman.

Eining-Iðja verður með fjóra kynningarfundi í vikunni, sjá hér

Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst miðvikudaginn 13. mars kl. 12:00 og lýkur miðvikudaginn 20. mars kl. 9:00. Niðurstöður verða kynntar strax í kjölfarið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru væntanlegar.