Lágmarksþjónusta í dag og föstudag

Flestir starfsmenn félagsins eru að fara í stutt frí og því verður starfsemi skrifstofunnar á Akureyri í lágmarki í dag, miðvikudag, og næsta föstudag. Sömu daga verður lokað á skrifstofu félagsins á Dalvík en í Fjallabyggð verður opið í dag en lokað á föstudaginn.

Starfsmenn sem verða við vinnu munu gera sitt besta til að þjóna félagsmönnum og öðrum þeim sem leita eftir aðstoð.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hægt er að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is