Lágmarksþjónusta á skrifstofunni á Akureyri - Lokað í Fjallabyggð

Þar sem aðalstjórn félagsins ásamt starfsmanni stjórnarinnar, skrifstofustjóra og starfsmönnum deildarstjórna verða á vinnufundi í Sveinbjarnargerði frá kl. 12 á morgun, fimmtudaginn 16. nóvember, til kl. 16 föstudaginn 17. nóvember 2023 verður lágmarksþjónusta á skrifstofu félagsins á Akureyri á meðan.

Skrifstofa félagsins í Fjallabyggð verður jafnframt lokuð fimmtudaginn 16. nóvember 2023.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hægt er að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is