Laun um jólin

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki yfirvinnu eða eftir atvikum álag á stórhátíðum, en þeir dagar sem slíkt gildir um eru:

  • aðfangadagur eftir kl. 12
  • jóladagur
  • gamlársdagur eftir kl. 12
  • nýársdagur

Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. 

Fyrir yfirvinnu á öðrum frídögum skal greiða 80% álag á dagvinnutímakaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Annar í jólum telst sem almennur frídagur. 

Í vaktavinnu eru til tvær reglur um greiðslur á þessum dögum. Annarsvegar hjá þeim sem fá vetrarfrí og svo hjá hinum sem ekki eru með vetrarfrí. 

Starfsmenn í fullu starfi, sem vinna reglubundna vaktavinnu, vinna sér inn 12 vetrarfrídaga á ári vegna samningsbundinna helgi- og tyllidaga sem falla á mánudaga til föstudaga í vinnuvikunni. Á þetta við um starfsfólk sem hefur unnið fulla vaktavinnu í einn mánuð eða lengur.

Undantekningar:

  • Starfsfólk sem sinnir hlutastarfi í vaktavinnu á hlutfallslegan rétt í samræmi við starfshlutfall.
  • Starfsfólk í tilfallandi vinnu á rétt á stórhátíðarkaupi vegna vinnu á stórhátíðardögum. 

Ef vetrarfrísregla á við þá er greitt 90% álag á stórhátíðardögum.

Ef vetrarfrí er ekki veitt skal greitt stórhátíðarkaup á stórhátíðardögum.