Launahækkanir á opinberum vinnumarkaði taka gildi 1. apríl

Samkvæmt núgildandi kjarasamningum Starfsgreinafélags Íslands við bæði ríki og sveitarfélög verða kjarasamningsbundnar launahækkanir þann 1. apríl 2026.

Á heimsíðu Starfsgreinasambands Íslands má nú þegar finna nýjar launatöflur. SGS hefur sett kauptaxta upp í tæknilausninni GRID sem býður notendum upp á einfalt og gagnvirkt viðmót til að finna út laun skv. kauptöxtum o.fl. 
  • Kauptaxtar SGS vegna félagsfólks sem starfar hjá ríkinu GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið)
  • Kauptaxtar SGS vegna félagsfólks sem starfar hjá sveitarfélagi GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið)

Eining-Iðja hvetur félagsmenn til að fylgjast vel með á launaseðlinum hvort þessar launahækkanir skili sér ekki alveg örugglega til þeirra.