Vert er að benda á að enn eru nokkrar lausar vikur í orlofshúsum félagsins í ágúst. Með því að skrá sig inn á Mínar síður félagsins má sjá laus orlofshús og íbúðir, bóka og borga.
Nú gildir fyrstur bókar á Mínum síðum og greiðir þar, fyrstur fær.
Auðvitað er einnig hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur.
Hér fyrir neðan má stöðuna á hverjum stað fyrir sig þegar þessi frétt fór í loftið. Fréttin verður uppfærð annað slagið! (Síðast uppfært 12. ágúst kl. 11:50)
Brekkuskógur - ekkert laust
Einarsstaðir - ekkert laust
Flókalundur - ekkert laust
Flúðir - ein vika laus í ágúst
Húsafell - ekkert laust
Hvalfjörður - Bjarteyjarsandur - ein vika laus í ágúst
Höfuðborgarsvæðið - ekkert laust
Illugastaðir - ekkert laust
Klifabotn - ekkert laust
Munaðarnes - ein vika laus í ágúst
Stykkishólmur - ein vika laus í ágúst
Súðavík - ekkert laust
Svignaskarð - ekkert laust
Tjarnargerði - ekkert laust
Vaðnes - ekkert laust
Ölfusborgir - ekkert laust