Laus orlofshús vikuna 12. til 19. júní

Vert er að benda á að nú eru einungis tvö orlofshús laus vikuna 12. til 19. júní nk., Bjarteyjarsandur í Hvalfirði og Klifabotn í Lóni. Nú gildir fyrstur pantar/fyrstur fær.

Auðveldast er að fara inn á Orlofshúsavef félagsins og skoða hvað er laust. Þar er einnig hægt að panta og ganga frá greiðslu.

Einnig er hægt að hringja í félagið í síma 460 3600, senda tölvupóst á ein@ein.is eða bara líta við á skrifstofur félagsins, á Akureyri, Dalvík eða í Fjallabyggð.