Laus orlofshús vikuna 19. til 26. júní

Vert er að benda á að nú eru einungis eitt orlofshús laust í næstu viku, Garðshorn í Ölfusi. Nú gildir fyrstur pantar/fyrstur fær.
 
Auðveldast er að fara inn á Orlofshúsavef félagsins og skoða hvað er laust. Þar er einnig hægt að panta og ganga frá greiðslu.
 
Einnig er hægt að hringja í félagið í síma 460 3600, senda tölvupóst á ein@ein.is eða bara líta við á skrifstofur félagsins, á Akureyri, Dalvík eða í Fjallabyggð.