Laust um helgina í Tjarnargerði

Ótrúlegt en satt, það er laust um helgina í orlofshúsi félagsins í Tjarnargerði. Nú gildir fyrstur pantar, fyrstur fær.

Auðveldast er að fara inn á Orlofshúsavef félagsins þar sem hægt að panta og ganga frá greiðslu.

Einnig er hægt að hringja í félagið í síma 460 3600.