Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Vert er að minna á að félagsfólki sem náð hafa lífeyrisaldri er boðið á gamanleikritið Beint í æð sem Leikfélag Fjallabyggðar sýnir í Tjarnarborg, menningarhúsi Fjallabyggðar. Sýningin verður sunnudaginn 24. mars og hefst kl. 14:00.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600.

Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 12:30, stoppað verður við skrifstofu félagsins á Dalvík á leiðinni til Ólafsfjarðar.

Akstur er einnig í boði frá Siglufirði og Grenivík.

Eftir sýninguna verður boðið upp á kaffihlaðborð.

Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða.