Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Í gær, sunnudaginn 24. mars, bauð félagið félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á gamanleikritið Beint í æð sem Leikfélag Fjallabyggðar sýnir í Tjarnarborg, menningarhúsi Fjallabyggðar. 

Að sýningu lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð.

Um 100 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér í kaffi og með því og á skemmtilega leiksýningu.