Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Allt að verða klárt fyrir sýninguna. Tæplega 90 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýni…
Allt að verða klárt fyrir sýninguna. Tæplega 90 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýninguna sem var hin besta skemmtun.

Laugardaginn 8. mars sl. fóru félagsmenn sem eru lífeyrisþegar í boði félagsins á á farsakennda söngleikinn Epli og eikur sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum og er eftir Þórunni Guðmundsdóttur tónskáld og leikritahöfund. Tæplega 90 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýninguna sem var hin besta skemmtun.

Fyrir sýningu var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla.

Nánar um sýninguna
Sprenghlægilegur, farsakenndur söngleikur sem gerist allur á sama stað, í almenningsgarði í kringum garðbekk. Þar fer fram ákaflega flókinn eltingarleikur þar sem fangelsispresturinn Jóhannes er að fylgjast með glæpakonunni Frú Stefaníu, Vala, kona Jóhannesar, fylgist með honum en fær síðan járnsmiðinn Baldur til starfans. Til sögunnar kemur unga stúlkan Rakel sem einnig fer að eltast við Jóhannes. Prestsdóttirin Lára fer að læra glæpamennsku hjá frú Stefaníu og þær æfa sig í gagnkvæmri eftirför, Dóra systir hennar eltist við hinn myndarlega dr. Daníel, eða ekki. Inn í allt þetta fléttast síðan ýmis örlög persónanna, meinleg eða ekki.