Félagsfólki sem náð hafa lífeyrisaldri er boðið á gamanleikinn Tom, Dick & Harry sem verið er að sýna í Freyvangsleikhúsinu.
Sýningin verður laugardaginn 28. mars 2026. Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:30. Akstur einnig í boði frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík.
Boðið verður upp á kaffihlaðborð að sýningu lokinni.
Skráning fer fram á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða.
Nánar um sýninguna
Gamanleikurinn Tom, Dick & Harry er eftir breska gamanleik höfundinn Ray Cooney og son hans Michael Cooney.
Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni.
Bræður Toms þeir Dick og Harry eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfan sig og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin. Því má segja að það fari kannski ekki allt sem skyldi og flækjast málin fyrir Lindu og þá kannski ekki síst fyrir Tom.
Gamanleikurinn er í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar og er hann Freyvangsleikhúsinu vel kunnugur þar sem þetta er fimmta verkið sem hann leikstýrir hjá þeim.